✦
Eygló Gísladóttir er nemi í ljósmyndun hér í Reykjavík
✦
✦Hún tekur afskaplega fallegar myndir og okkur langaði til þess að fá vita aðeins meira um þennan framtíðar ljósmyndara✦
1.Fullt nafn og aldur
Sigríður Eygló Gísladóttir, 23 ára.
Ég er í Ljósmyndaskólanum í Reykjavík og vinn stundum í Gagnavörslunni.
3. Uppáhalds fatamerki/hönnuður
Ég á mér ekkert uppáhalds í hvoru fyrir sig, ég kaupi bara það sem augað girnist og buddan leyfir.
4. Uppáhalds verslun
Vintage búðir! Ég get gleymt mér lengi lengi lengi í þeim....
5. Hvað er það skrítnasta sem þú hefur gert?
Þessi spurning er erfið.. ég hreinlega veit það ekki!
6. Uppáhalds kvikmynd?
Nýlega er ég búin að vera að horfa á mikið af heimildarmyndum um ljósmyndara og hönnuði. Þær eru í uppáhaldi núna.
7. Uppáhalds tónlist
Ég hlusta á allskonar! Í augnablikinu er það Ceremonials diskurinn með Florence and the Machine.
8. Fallegasti staður sem þú hefur komið á
Lake Como á Ítalíu & sveitasetrið Hvammur í Fljótum.
9. Besta djammpleisið?
Þar sem vinir mínir eru :)
10. Flottast við tískuna í dag?
Það er svo mikið, það er "allt" leyfilegt! Mér finnst t.d. þessir flauels
kjólar sem eru að koma í tonna tali æðislegir.
11. Skemmtilegustu bloggin?
Wildfox bloggið, Sagan Endalausa, Trendland, Olsens Anonymous, Honestly WTF, Knightcat, allar þessar tumblr síður og fleiri og fleiri!
12. Uppáhalds ljósmyndari?
ROSALEGA MARGIR! Ég er alltaf að skoða, uppgötva og sanka að mér nýjum.
13. Skemmtilegasta myndatakan þín?
Ég held að engin ein sé skemmtilegri en hinar, ætli það sé ekki bara alltaf sú nýjasta, það er svo
gaman að líta tilbaka og sjá hversu mikið hefur breyst og hvað ég hef lært og bætt.
Hverjir eru framtíðardraumarnir?
Læra meira, ferðast, geta unnið við og lifað á því að taka myndir.
Hvað langar þig mest í jólagjöf?
Nýja linsu, bókina Backstage Dior og Macbook ;)
Myndirnar Hennar Eyglóar
Lesa meira...